EPISODES
  • Caddisbræður

    Í þessum þætti komu þeir Caddisbræðir, Óli og Hrafn í spjall. Þeir bræður eru með færustu þurrfluguveiðimönnum landsins og einstaklega mikil náttúrubörn. Þeir eru líka afskaplega skemmtilegir menn og fróðir. Mjög skemmtilegt spjall, þar sem mikið er hlegið.

    1h 37m | Dec 15, 2022
  • Frændaspjall - Elías Pétur Þórarinsson Viðfjörð.

    Hann Elías Pétur kom í langt og skemmtilegt spjall. Við fórum um víðan völl. Urriða,bleikju og laxveiði, Fuss félag, sjókvíaeldi og yfir í að spjalla um móahægðir veiðimanna. Skemmtilegur þáttur. 

    41m | Dec 7, 2022
  • Einveran og austurland.

    Í þessum þætti tölum við aðeins um þá iðju að veiða einn. Einnig læt ég loksins verða af því að kynna mér silungsveiðina á austurlandi með hjálp góðs gest. Jón Þór Tryggvason er gestur minn í þessum þætti.

    40m | Dec 2, 2022
  • Galdraflugan og brennuöldin á Íslandi.

    Í þessum þætti leitum við svara hversvegna Bibio Pomonae er kölluð Galdrafluga. Sú leit tekur okkur til baka um tæp 400 ár þar sem ár og vötn eru yfirfull af fisk og Íslendingar voru brenndir á báli. Þessi er nokkuð sagnfræðiþungur. Fulla útgáfu má finna á patreonsíðu Dagbókar urriða.

    38m | Nov 22, 2022
  • Jónas og arfurinn.

    Í þessum þætti leiðbeinum við honum Jónasi um silungsveiðina á Íslandi. Jónas er byrjandi sem verður að veiða 5 punda silung og eða 5 vænar bleikjur á innan við sólarhring til þess að erfa moldríkan föður sinn. Vandamálið er að Jónas á aðeins tvær flugur og engan pening. En við hjálpum honum í gegnum þetta.

    51m | Nov 16, 2022
  • Dagbók Urriða - Hin rotnandi hætta.

    Í þessum þætti skoðum við Hnúðlaxinn. Hvað er þessi afturgöngufiskur að vilja okkur. Hvaðan kemur hann og hversvegna. Við förum vandlega í málið.

    53m | Nov 8, 2022
  • Truflaðir veiðimenn - Hólmsá (frír Patreonþáttur)

    Við skoðum Hólmsá, Bugðu og það frábæra vatnakerfi sem er fyrir ofan Elliðavatn í þessum þætti. Grúskum í sagnfræði og heyrum í Sævari Snorrasyni veiðiverði og veiðimanni.

    1h 1m | Jan 7, 2022
  • Grímsá og nágrenni - Dagbók urriða.

    Við skoðum ýmislegt í þessum þætti. Bjarni Sæmundsson skoðar Reyðarvatn, Hreðavatn og Langavatn. Við laumust til þess að skoða Grímsá, Vatnsdalsá og margt fleira skemmtilegt.

    Til ykkar sem viljið styrkja þessi hlaðvörp.

    www.Patreon/dagbokurrida

    40m | Dec 23, 2021
  • Truflaðir veiðimenn - Ep2 - 1992 - Patreon þáttur - frír

    Við ferðumst aftur til 1992 og skoðum veiðina þá. Eftir þá samatekt heyrum við í einstaklega færum veiðimanni og spyrjum hann spurninga þáttarins.

    Þessir þættir fara inn á lokaðan Patreonreikning eftir þennan þátt. Hjálpið mér að standa í þessu með því að styrkja mig um "hamborgara" á mánuði á https://www.patreon.com/Dagbokurrida

    1h 11m | Dec 21, 2021
  • SKORRADALUR - SKRÍMSLI - SLEPPINGAR -SLYS

    Við skoðum Skorradalsvatn árið 1898. Einnig leyfum við okkur að ferðast fram og til baka og snerta aðeins á sögunni á svæðinu. Við skoðum veiðina og þær breytingar sem átt hafa sér stað þar undanfarna áratugi.

    46m | Dec 16, 2021
  • Truflaðir veiðimenn - Ep1 -1981 Patreon þáttur (frír)

    Truflaðir veiðimenn eru hlaðvarpsþættir um veiði og sagnfræði sem í framtíðinni verða aðeins aðgengilegir í gegnum Patreon-síðu Dagbókar urriða. Í þáttunum stillum við tímavél og ferðumst aftur í tímann og skoðum einstaka ár í veiðinni á Íslandi, ásamt því að hringja í allskonar veiðimenn, trufla þá og reyna að ná í spjall. Skemmtilegir þættir fyrir áhugasama um stangveiði og sagnfræði.

    56m | Dec 15, 2021
  • Furðuverur og skrímsli í Kleifarvatni.

    Við skoðum Kleifarvatn bæði árin 1750, 1896 og 2021 og rekumst á furðuverur og skrímsli sem við þurfum að útskýra.

    46m | Jan 18, 2021
  • Selvogur.

    Við Bjarni skoðum Hlíðarvatn í Selvogi og nágrenni. Hittum höfuðskáld, útlagarollu og spjöllum við snjallann veiðimann um kuðunga, flugur, bellybáta ofl.

    1h 18m | Jan 12, 2021
  • Undir jöklum.

    Við ferðumst undir jöklum á svörtum söndum og skoðum allt sem við getum frá Skógá að Meðallandi. Hér er nóg af furðulegum hlutum. Þeir voru furðulegir 1896 og eru það enn í dag.

    45m | Jan 5, 2021
  • Þjórsá 1896

    Brúarsmiðurinn Mark veiðir fyrstur manna lax á stöng í Urriðafossi. 23 punda lax veiðist í Ytri Rangá og menn gapa yfir því að lax finnst þar. Þykkbæingar ráðast í mestu handavinnu íslandssögunnar. Stærsti laxastofn íslands verður til. Við skoðum Þjórsá og nágrenni með Bjarna Sæmundssyni 1896.

    47m | Dec 15, 2020
  • Varmá og nágrenni 1896

    Dagbók Urriða og Bjarni Sæmundsson skoða Varmá árið 1896. Einnig Hestvatn, Apavatn, Laugarvatn, nokkrar ár og leynivatn uppá fjalli. Sérstakur gestur í spjalli er Árni Kristinn Skúlasson.

    1h 45m | Dec 8, 2020
  • Þingvellir 1896.

    Við ríðum með Bjarna Sæmundssyni til Þingvalla árið 1896 og skoðum fiskana, veiðimennina og dýralífið. Við stillum síðan tímavélahestinn okkar aftur til ársins 2020 og berum saman ólíka tíma og veiðisögur verða sagðar.

    1h 2m | Dec 1, 2020
Dagbók Urriða
Loading...