• Ferðast um landið 3

    Við klárum nú að skoða þá veiðistaði sem ég hef kastað í á landinu okkar. Förum frá Skagaheiðinni alla leið yfir að Þingvöllum.

    S4E5 - 59m - Jan 30, 2024
  • Ferðast um landið #2

    Við ferðumst áfram um Ísland og heimsækjum hvern einasta veiðistað þar sem ég hef veitt í. Allt frá heimsþekktum svæðum yfir í skolprör og drullupolla. Já ég hef víða farið :)

    S4E4 - 1h 14m - Dec 27, 2023
  • Á ferð um landið.

    Við ferðumst um Ísland og heimsækjum hvern einasta veiðistað þar sem ég hef veitt í. Allt frá heimsþekktum svæðum yfir í skolprör og drullupolla. Já ég hef víða farið :)

    S4E3 - 1h 15m - Dec 19, 2023
  • Dagbók urriða - Tossalistinn.

    Í þessum þætti förum við saman yfir fjölmörg atriði sem ég hef verið að gera rangt í veiðinni undanfarin ár og mögulega þið líka. Það er þó ekkert rétt eða rangt í veiði, eins lengi og veiðimenn og konur hafa ánægju af...og já að aðferðirnar séu löglegar.

    S4E2 - 1h 0m - Nov 16, 2023
  • Sumarið 2023.

    Við skoðum veiðisumarið 2023 og hvernig það tók á móti mér. Einnig fáum við nokkur fróðleg innskot frá Hrafni Ágústssyni Caddisbróður.

    S4E1 - 1h 16m - Nov 9, 2023
  • Regnbogasilungur

    Í þessum þætti tölum við aðeins og vorið sem stendur yfir. Heyrum í Elíasi Pétri Viðfjörð, sem víða hefur farið í vor og skoðum síðan sögu regnbogasilunga á Íslandi, svona í ljósi þess sem er að gerast í Minnivallalæk.

    S2E28 - 58m - Apr 20, 2023
  • Þurrfluguveiði með Óla Caddisbróður.

    Í þessum þætti fáum við Ólaf Ágúst Haraldsson (Óli Caddisbróðir) í spjall og tölum um listina að veiða á þurrflugu.

    S2E27 - 59m - Mar 28, 2023
  • Dauði bleikjunnar.

    Í þessum þætti skoðum við hnignun bleikjunnar. Hvað er að gerast? Það veit enginn fyrir víst, en nokkrar líklegar kenningar eru á sveimi. Við gerum það eina sem við getum og rýnum í tölur, veður og sjó og finnum óvænta samnefnara. Þessi þáttur er nokkuð þungur nördalega.

    S2E26 - 1h 12m - Mar 23, 2023
  • Dagur Árni - Allt um straumflugur fyrir stóru fiskana.

    Í þessum þætti heyrum við í Dag Árna og lærum mikið um stórar straumflugur og þá tækni sem býr að baki því að ná þessum stóru fiskætum. Við spjöllum líka um Kaliforníu og þær hættur sem leynast þar í veiðinni. Virkilega skemmtilegur þáttur sem mikið er hægt að læra af.

    S2E25 - 1h 11m - Mar 14, 2023
  • Tryggvi Guðmundsson - Maðurinn með hornsílin.

    Í þessum þætti spjöllum við Tryggvi Guðmundsson um ýmislegt í veiðinni. Tryggvi hefur starfað við jöklaleiðsögn til fjölda ára en er einnig sjúkur veiðimaður og náttúrubarn. Tryggvi nemur nú líffræði við Háskóla Íslands. Við skoðum Arnarvatnsheiði, pöddur, fluguhnýtingar, sýkingar í fiskum og hornsíli ásamt mörgu fleira skemmtilegu.

    S2E24 - 1h 14m - Mar 8, 2023
  • Nördaslagur - fyrsta umferð.

    Í þessum þætti reyni ég að hefna fyrir tap mitt í veiðipubquiz-i fyrir viku síðan. Þar tapaði ég naumlega fyrir líffræðing og veiðinörd. Ég þurfti að reyna að jafna leikinn og setti upp veiðinördabardaga í beinni. Danner Vs Dagbókin. Þessi er lærdómsríkur.

    S2E23 - 59m - Feb 28, 2023
  • Eldgos og laxfiskar.

    Við skoðum áhrif eldgosa á fiskana sem við elskum að veiða. Ferskvatnsfiskstofnar á Íslandi hafa þurft að þola ýmislegt þau 11.500 ár sem þeir hafa búið hér. Við skoðum samspil eldgosa og fiskdauða á Íslandi.

    S2E22 - 47m - Feb 23, 2023
  • Þar sem tröllin búa.

    Í þessum þætti skoðum við einstaka náttúruparadís sem fyrir veiðimanninn, væri líklega best að lýsa sem furðulegri. En þar finnast þó líklega stæðstu bleikjur á Íslandi. Fáum einnig til okkar skemmtilegan gest til að fara yfir málið.

    S2E20 - 58m - Feb 14, 2023
  • Sjóbirtingur í Danmörku og vinsæl veiðiperla á Íslandi.

    Í þessum þætti spjöllum við örlítið meira um fluguveiði í sjó. Við fáum til okkar gest sem keppir í slíkri veiði og er sá eini sem ég þekki sem gerir slíkt. Hann hefur víða veitt á Íslandi einnig og fræðir okkur um okkar helstu perlu.

    S2E15 - 1h 2m - Feb 8, 2023
  • Silungur í sjó.

    Nú skoðum við veiðar á silung í sjó. Eitthvað sem við Íslendingar gerum lítið af. Í það minnsta minna en frændur okkar á norðurlöndum. En er mögulega ástæða fyrir því? Fáum til okkar góðan gest sem þekkir veiðar á sjógöngusilung í sjó vel.

    S2E14 - 46m - Jan 29, 2023
  • Veiðin á Íslandi 1752 - 3 hluti.

    Þá ljúkum við ferðalagi okkar með þeim Eggerti Ólafssyni og Bjarna Pálssyni um Ísland milli 1752-1757. Við skoðum veiðina á austurlandi og suðausturlandi. Finnum risableikjur í jökullóni, drepum síðastu tvo Geirfuglana, sjáum geysi gjósa og rannsökum hvernig Sogið gat horfið í einn dag.

    S2E11 - 49m - Jan 18, 2023
  • Veiðin á Íslandi 1752 - 2 hluti.

    Við höldum áfram að ferðast með þeim Eggerti Ólafssyni og Bjarna Pálssyni um Ísland milli 1752-1757. Við skoðum hvernig veiðin var þá og síðan hvernig hún er í dag.

    S2E10 - 53m - Jan 11, 2023
  • Veiðin á Íslandi 1752

    Í þessum þætti förum við enn á ný í tímavélina og núna alla leið til ársins 1752. Þar sláumst við í för með Eggerti Ólafssyni og Bjarna Pálssyni á ferð þeirra um Ísland. Við ignorum nánast allt sem þeir sjá, nema laxfiska og veiði. Við berum svo saman hvernig staðan á þeim svæðum sem skoðuð eru, er síðan í dag. Eins og áður á tímaferðalögum okkar, þá hefur margt breyst. 18 öldin var hörmungaröld, en var eitthvað að hafa?

    S2E9 - 56m - Jan 3, 2023
  • Kjötiðnaðarmaðurinn Hjörvar Jóhannesson.

    Í þessum þætti spjalla ég við Hjörvar Jóhannesson. Hjörvar er kjötiðnaðarmaður frá Akureyri. Hann er veiðisjúklingur eins og við flest en þó ekki aðeins á sumrin. Hjörvar veiðir töluvert í gegnum ís um vetur og veit sitthvað um hvítmaðk. Við förum um víðan völl í spjalli okkar.

    S2E8 - 1h 3m - Dec 29, 2022
  • Að gera veiðiþætti.

    Í þessum sóló þætti, fer ég yfir reynslu mína af gerð veiðimyndbanda og þátta. Skyggnumst aðeins bakvið tjöldin á gerð þáttana Dagbók urriða. Þetta er jólaþáttur, svo ég óska ykkur gleðilegra jóla og þakka ykkur fyrir liðið ár :)

    S2E7 - 1h 16m - Dec 20, 2022
Audio Player Image
Dagbók urriða - Truflaðir veiðimenn - Áskrift.
Loading...